Nám
Bakaraiðn
Bakariðn er löggilt iðngrein. Meginmarkmið námsins er að nemendur hljóti nauðsynlega, almenna og faglega menntun til að takast á við þau störf sem bökürum er nauðsynleg í störfum sínum s.s. þekkingu á hráefni, vélum og tækjum.
Meðalnámstími er fjögur ár, samtals þrjár annir í skóla og 126 vikna starfsþjálfun.
Námið er alls 186 einingar og lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.
Bakari er löggilt iðngrein og er námið kennt í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi og Verkmenntaskólanum á Akureyri.

Helstu námsgreinar
- Sérgreinar tengdar iðninni s.s. bakstur, fagfræði bakara, hráefnisfræði í bakstri, næringarfræði og tungumál fyrir matvæla- og veitingagreinar.
- Almennar bóklegar greinar eins og íslenska, stærðfræði og erlend tungumál.
- Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.
Framhaldsmenntun
Meistaranám í iðninni, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum.
Námstími
4 ár
Nám
Kökugerð / konditor
Kökugerð/Konditori er löggilt iðngrein á Íslandi og námið er að hluta til hægt að læra á Íslandi. Nokkur konditori og bakarí hérlendis eru með nema á samningi og taka nemarnir verklega hlutann hér, en fara til útlanda í skóla.
Ekki er möguleiki á að taka allt námið hérlendis. Alltaf verður að fara í skóla og taka sveinspróf erlendis.
Flestir nemarnir fara til ZBC í Ringsted í Danmörku, sem er eini skólinn sem býður upp á konditornám í Danmörku.

Helstu námsgreinar
- Sérgreinar tengdar iðninni s.s. eftirréttagerð, kökubakstur, konfektgerð, ísgerð, fagfræði konditora, hráefnisfræði í bakstri, næringarfræði, framleiðslutækni og þjónusta og fagreikningur.
- Verkleg þjálfun og tilsögn hjá meistara í faginu.
Framhaldsmenntun
Meistaranám í iðninni í MK, nám í tækni- og/eða háskólum ásamt fjölmörgum endurmenntunarnámskeiðum.
Námstími
4 ár og 6 mánuðir.
Vilji bakari bæta við sig kökugerð þá tekur námið 1 ár og 6 mánuði.
Fyrirtækjalisti
Hvar get ég lært?
Eftirfarandi fyrirtæki eru með gild nemaleyfi, eða eru með nema á samning:
Bakaraiðn
- Almar bakari — Hveragerði
- Austrstönd ehf / Björnsbakarí vesturbæ — Seltjarnarnesi
- Bakarameistarinn ehf — Reykjavík
- Brauða- og kökugerðin ehf — Akranesi
- Gæðabakstur ehf — Reykjavík
- Hérastubbur bakari — Grindavík
- Hjá Jóa Fel-brauð-/kökulist ehf — Reykjavík
- Kökulist ehf — Hafnarfirði
- Mosfellsbakarí ehf — Mosfellsbæ
- Okkar bakarí ehf — Garðabæ
- Reynir bakari ehf — Kópavogi
- Sandholt ehf — Reykjavík
- Sveinsbakarí ehf — Reykjavík
Kökugerð (konditori)
- Bernhöftsbakarí ehf — Reykjavík
- Brauðgerð Kr. Jónssonar ehf — Akureyri
- Mosfellsbakarí ehf — Mosfellsbæ
- Sandholt ehf — Reykjavík

