Um félagið

LABAK

Um félagið

Stofnað 1958

Landssamband bakarameistara er samtök fyrirtækja í brauð- og kökugerð á Íslandi.

Markmið og tilgangur LABAK er að safna saman í ein samtök öllum fyrirtækjum sem standa að rekstri brauð- og kökugerða og gæta hagsmuna þeirra gagnvart opinberum aðilum.

Rétt til aðildar að LABAK sem fullgildir meðlimir hafa öll fyrirtæki sem standa fyrir rekstri brauð- og kökugerða og hafa í þjónustu sinni bakara- eða kökugerðarmeistara.

Saga félagsins

1958

Landssamband bakarameistara var stofnað í Reykjavík þann 25. janúar 1958. Stofnfundurinn var í alla staði hinn ánægjulegasti og mjög til hvatningar fyrir stéttina í heild.

1964

Miðvikudaginn 29. janúar 1964 hófst verkleg kennsla í bakaraiðn í Iðnskólanum í Reykjavík — langt baráttumál bakarastéttarinnar komið í framkvæmd.

1984

Það sem öðru fremur setti svip sinn á starfsemi LABAK á árinu 1984 var 150 ára afmæli brauðgerðariðnarinnar á Íslandi, haldið hátíðlega með sýningu og afmælisveislu.

Í dag

LABAK er aðili að Samtökum iðnaðarins og Samtökum atvinnulífsins og heldur áfram að gæta hagsmuna bakarameistara og stuðla að þróun greinarinnar.

Lesa söguna í heild

Lög félagsins

Tilgangur

  • Safna saman í ein samtök öllum fyrirtækjum í brauð- og kökugerð
  • Gæta hagsmuna sambandsaðila gagnvart opinberum aðilum
  • Vinna að aukinni menntun og verkkunnáttu í greininni
  • Standa fyrir kynningu og fræðslu er bakaraiðnina varðar

Aðild

  • Fullgildir meðlimir: fyrirtæki með bakara- eða kökugerðarmeistara
  • Umsókn um inngöngu skal vera skrifleg til stjórnar
  • LABAK er aðili að Samtökum iðnaðarins og Samtökum atvinnulífsins
  • Aukafélagar: þeir sem hafa verið fullgildir aðilar en hættu störfum

Stjórn

  • Stjórn skipuð þremur félögum: formaður og tveir meðstjórnendur
  • Kosin til eins árs á aðalfundi
  • Aðalfundur haldinn fyrir lok maímánaðar ár hvert
  • Lögmætir aðalfundir eru æðsta vald í málefnum sambandsins

Reglur

  • Lögum má einungis breyta á löglegum aðalfundi
  • Lagabreytingar þurfa samþykki 2/3 fundarmanna
  • Lögunum var síðast breytt á aðalfundi 29. apríl 2023
  • Félagamerki LABAK eru skráð vörumerki í eigu sambandsins
Sjá öll lög í heild sinni

Stjórn LABAK

Formaður

Sigurður Már Guðjónsson

Aðrir í stjórn

Sigurbjörg Sigþórsdóttir

Vilhjálmur Þorláksson

Varamenn

Sigurjón Héðinsson

Sigurður Örn Þorleifsson

Formenn frá upphafi

  • Sigurður Már Guðjónsson2022 –
  • Hafliði Ragnarsson2021 – 2022
  • Sigurbjörg Sigþórsdóttir2020 – 2021
  • Jóhannes Felixson2017 – 2020
  • Jón Albert Kristinsson2014 – 2017
  • Jóhannes Felixson2007 – 2014
  • Reynir Carl Þorleifsson2004 – 2007
  • Guðni Chr. Andreasen1997 – 2004
  • Stefán Sandholt1993 – 1997
  • Haraldur Friðriksson1986 – 1991
  • Sigurður Bergsson1958 – 1970

Félagsmenn

Meðlimir LABAK