Franska kökugerðarkonan Nina Métayer var útnefnd alþjóðlegur kökugerðarmaður ársins af Alþjóðasamtökum bakara og kökugerðarmanna (UIBC). Nina tekur við titlinum af Sigurði Má Guðjónssyni í Bernhöftsbakaríi sem hlaut titilinn síðast.
Sigurður, sem nýlega var kosinn í stjórn alþjóðasamtakanna, var einnig sæmdur nýju heiðursmerki þeirra, Select Club. Af þeim sökum kemur það í hans hlut að velja bakara og kökugerðarmann ársins og skipa í heiðursklúbbinn.
Í samtali við Morgunblaðið greindi Sigurður frá því að afar ánægjulegt væri að vígja Ninu inn í Select Club, sem er hin nýja frægðarhöll bakara og kökugerðarmanna.
Nina hefur vakið mikla athygli á síðustu árum í heimalandi sínu. Hún var meðal annars valin kökugerðarmaður ársins af tímaritinu LeChef og ári síðar hlaut hún sambærilegan heiður þegar franska handbókin Gault & Millau útnefndi hana bakara ársins.



