Dagurinn í dag er merkur í sögu bakaraiðnaðar á Íslandi en á þessum degi, þann 25. september árið 1834, opnaði fyrsta brauðgerð landsins — fyrir 190 árum síðan.
Hinn danski Peter Christian Knudtzon, kaupmaður og þingmaður, hafði þá reist húsnæði í Torfunni og var bakaraofn að finna í einu þeirra. Hann fékk þýskan bakarameistara að nafni Tönnies Daniel Bernhöft til starfa við brauðgerðina. Sá átti eftir að taka við rekstrinum og breytti nafni brauðgerðarinnar í Bernhöftsbakarí, og er það bakarí í rekstri enn þann dag í dag.
Árið 1868 var síðan opnuð brauðgerð á Akureyri og voru bakaríin þá orðin tvö, en þeim átti þá aðeins eftir að fjölga.
Bakarastéttin fagnar því 190 ára afmæli í dag og færir Landssamband bakarameistara, LABAK, bökurum landsins ásamt landsmönnum heillaóskir í tilefni dagsins.
Fjallað er um þessi tímamót í Morgunblaðinu þar sem Sigurður Már Guðjónsson, formaður LABAK og bakarameistari Bernhöftsbakarís, er til viðtals um sögu fyrirtækisins sem er samofin sögu bakarastéttarinnar og iðnaðar á Íslandi, en bakaríið er jafnframt elsta iðnfyrirtæki landsins.
Lesa má umfjöllunina hér að neðan eða á mbl.is.






