Íslenska landsliðið í bakstri náði glæsilegum árangri á Norðurlandamótinu í bakstri, Nordic Cup, sem fram fór í Berlín dagana 28.–31. ágúst.
Liðið var skipað Finni Prigge, Matthildi Ósk Guðbjörnsdóttur og Sunnevu Kristjánsdóttur og óskar LABAK þeim innilega til hamingju með árangurinn.
Þetta er annað árið í röð sem íslenska liðið vinnur til silfurs á Norðurlandamótinu og því ljóst að bakaraiðnin á Íslandi er í miklum blóma um þessar mundir.
Í ár voru það Svíar sem stóðu uppi sem sigurvegarar en Norðmenn lentu í þriðja sæti.





