Nýsveinar í bakaraiðn taka við sveinsbréfum sínum við hátíðlega athöfn

Fréttir

Nýsveinar í bakaraiðn tóku á móti sveinsbréfum sínum

Þriðjudaginn 17. september fór fram afhending sveinsbréfa til nýsveina á Hótel Nordica við hátíðlega athöfn.

Alls fengu 13 nýsveinar í bakaraiðn afhent sveinsbréf sín, en þetta er fjölmennasti hópur nýsveina í greininni síðan árið 2000. Sigurður Már Guðjónsson, formaður LABAK og sveinsprófsnefndar, afhenti nýsveinum sveinsbréf sín ásamt viðurkenningu frá LABAK.

Fjölmenn athöfn

Afhending sveinsbréfa var afar fjölmenn að þessu sinni. Alls fengu 223 nýsveinar afhent sveinsbréf í 16 mismunandi iðngreinum.

Auk bakaraiðnar voru þar nýsveinar í bifreiðasmíði, bifreiðamálun, blikksmíði, framreiðslu, húsgagnabólstrun, húsgagnasmíði, kjötiðn, matreiðslu, málaraiðn, múraraiðn, pípulögnum, stálsmíði, veggfóðrun, dúkalögn og veiðafæratækni.

Fjölmennasti hópurinn var í húsasmíði, þar sem alls 81 sveinsbréf voru afhent.

Landssamband bakarameistara óskar öllum nýsveinum innilega til hamingju með áfangann og glæsilegan árangur.

Lesa nánar á mbl.is
← Allar fréttir