Brauð ársins 2024 — súdeigsbrauð með byggi og rúgkorni

Fréttir

Brauð ársins 2024

Eyjólfur Hafsteinsson hjá Bakarameistaranum sigraði í keppninni Brauð ársins 2024.

Landssamband bakarameistara stóð fyrir keppni um brauð ársins 2024. Sjö frábærar brauðtegundir kepptu til úrslita, en brauð Eyjólfs Hafsteinssonar, bakarameistara, fór með sigur af hólmi.

Brauð ársins 2024 er súdeigsbrauð sem samanstendur af íslensku byggi frá Móður náttúru og spíruðu rúgkorni, sesamfræjum og chiagraut. Að mati dómnefndar er brauðið einstaklega mjúkt og bragðmikið með brakandi skorpu.

Í dómnefnd sátu Árni Þorvarðarson, bakarameistari og deildarstjóri bakariðnar hjá MK, Berglind Festival Pétursdóttir, fjölmiðlakona og brauðunnandi, og Sjöfn Þórðardóttir, blaðamaður hjá mbl.is. Dómnefndin var einróma í áliti sínu.

Brauð ársins fer í sölu á fimmtudaginn í bakaríum Landssambands bakarameistara.

← Allar fréttir