Elíza Reid forsetafrú tekur á móti Köku ársins 2024

Fréttir

Elíza Reid forsetafrú tók á móti fyrstu Köku ársins

Sala á Köku ársins 2024 hófst í bakaríum Landssambands bakarameistara (LABAK) fimmtudaginn 22. febrúar. Kakan er að venju kynnt í tilefni konudagsins.

Kakan var formlega kynnt þegar formaður LABAK, Sigurður Már Guðjónsson, og höfundur kökunnar, Eyjólfur Hafsteinsson hjá Bakarameistaranum, afhentu Elizu Reid forsetafrú fyrstu köku ársins sem þakklæti fyrir framlag hennar til lands og þjóðar síðustu átta ár.

Kaka ársins er valin í árlegri keppni sem LABAK stendur fyrir. Keppendur skila inn tilbúnum kökum sem dómarar meta og velja þá sem þykir best til þess fallin að hljóta titilinn. Í ár var keppnin haldin í samstarfi við Nóa Síríus og inniheldur kakan meðal annars Nóa-smákropp.

Kakan er marglaga og ríkuleg í bragði. Hún samanstendur af mjúkum marengsbotnum með kókossykri og léttristuðum kókos og heslihnetum. Hún er fyllt með karamellu og núggatfrómas og bragðbætt með ferskri appelsínupúrru. Kakan er síðan hjúpuð appelsínukrydduðum mjólkursúkkulaðiganas með Nóa-smákroppi.

Höfundur kökunnar er Eyjólfur Hafsteinsson hjá Bakarameistaranum.

Sala á kökunni hófst í bakaríum félagsmanna LABAK um allt land og verður hún til sölu það sem eftir er ársins.

← Allar fréttir