Heimsmót ungra bakara árið 2024 var haldið hér á landi í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi dagana 3.–5. júní.
Landssamband bakarameistara (LABAK) hélt keppnina en þetta var í fyrsta skiptið sem mót sem þetta er haldið á Íslandi og jafnframt í fyrsta skiptið á Norðurlöndum.
Keppnin var afar jöfn og hart var barist um verðlaunasætin. Yfirdómari keppninnar, Bernd Kutscher, upplýsti að aðeins herslumunur hafi verið á liðunum sem enduðu í 1.–5. sæti.
Alls tóku lið frá sjö ríkjum þátt: Frakklandi, Íslandi, Kína, Spáni, Svíþjóð, Ungverjalandi og Þýskalandi.
Fyrsta sæti hreppti lið Svíþjóðar, skipað Mathildu Jacob, Juliu Holmqvist og Mattiasi Jogmark. Í öðru sæti varð lið Spánar, skipað Isabelu García Castillo, Mónica Rufián og Jesús Sanchez Lopez. Þriðja sætið hlaut lið Frakklands, skipað Romain Benat, Antoine Marin og Michael Chesnoard.
Yfirdómari veitti einnig sérstök verðlaun. Lið Ungverjalands hlaut verðlaun sem nýliðar, kínverska liðið fyrir afar glæsilegt sýningarstykki og íslenska liðið hlaut sérstök verðlaun fyrir hugarfar og áræðni.
Íslenska liðið var skipað Heklu Guðrúnu Þrastardóttur, Stefaníu Malen Guðmundsdóttur og Stefáni Bachmann.
Keppnin hefur verið haldin af International Union of Bakers & Confectioners (UIBC) frá árinu 1972. Skipulag og framkvæmd mótsins hér á landi fékk mikið lof og var Sigurður Már Guðjónsson, formaður LABAK, sérstaklega hrósað fyrir sitt framlag.





