Dagana 3. til 5. júní næstkomandi verður heimsmeistaramót ungra bakara haldið á Íslandi. Keppnin hefur verið haldin af International Union of Bakers & Confectioners (UIBC) síðan 1972. Landssamband bakarameistara (LABAK) stendur fyrir keppninni.
Þetta er í fyrsta skipti sem LABAK stendur fyrir svona stóru móti á Íslandi og jafnframt í fyrsta skipti á Norðurlöndum. Um er að ræða mikinn viðburð sem er þekktur í heimi bakara.
UIBC var stofnað árið 1931 í Búdapest og er alþjóðasamband bakara og kökugerðarmanna um allan heim. Sambandið er fulltrúi um 300.000 bakaría í fimm heimsálfum þar sem um fjórar milljónir einstaklinga starfa í bakaríum heimsins. Félagið stendur fyrir alls kyns viðburðum um allan heim og samhliða heimsmeistaramótinu mun Ísland verða miðpunktur umfjöllunar um þessa aldagömlu iðngrein hjá þátttökulöndum.
Sjö lið keppa um heimsmeistaratitilinn
Í ár keppa sjö lið um meistaratitilinn og fer mótið fram í Hótel- og veitingaskólanum í Kópavogi. Ísland er meðal keppenda í ár og eru fulltrúar landsins tvær efnilegar ungar konur sem skara fram úr á sínu sviði og hafa verið valdar af kennurum skólans til að taka þátt fyrir Íslands hönd.
Einnig verða virtir erlendir dómarar í faginu sem koma til Íslands til að dæma liðin meðan á keppni stendur. Löndin sem keppa til úrslita eru Ísland, Þýskaland, Frakkland, Spánn, Svíþjóð, Ungverjaland og Kína og munu fulltrúar þeirra framreiða þjóðlegan bakstur sem dómarar UIBC munu dæma.
Fulltrúar Íslands fyrir hönd LABAK eru þær Hekla Guðrún Þrastardóttir og Stefanía Malen Guðmundsdóttir, bakarar.
Undirbúningur og fyrsta rennsli verða 3. júní frá kl. 14:00 og mun Ísland keppa þar. Þann 4. júní munu keppendur mæta á Bessastaði og hitta Elizu Jean Reid forsetafrú og bjóða upp á þjóðlegar kökur í tilefni af heimsmeistaramótinu. Verðlaunaafhending verður 5. júní klukkan 16:30 í Menntaskólanum í Kópavogi, Digranesvegi 51.
UIBC-sambandið hefur staðið fyrir heimsmeistaramótum bakara og kökugerðarfólks víða um veröld. Má nefna að hér á Íslandi var haldið haustið 2022 heimsþing samtakanna, einnig í fyrsta skipti í sögu bakara á Íslandi og jafnframt í fyrsta skipti á Norðurlöndum.
Streymt er frá keppninni og er hægt að nálgast streymi fyrir sýningarsal hér og fyrir vinnusvæði hér.





