Nýútskrifaðir bakarar eftir sveinspróf 2024

Fréttir

Þrettán nemar þreyttu sveinspróf í bakaraiðn

Í dag, fimmtudaginn 30. maí 2024, þreyttu alls þrettán nemar í bakaraiðn sveinspróf. Að þessu sinni voru konur í meirihluta, alls sjö konur og sex karlar.

Ekki hafa fleiri nemar verið skráðir til sveinsprófs í bakaraiðn síðan árið 2000. Þetta gefur afar góð fyrirheit fyrir framtíðina og ljóst er að áhugi á bakaraiðn fer vaxandi.

Sigurður Már Guðjónsson, formaður LABAK og jafnframt formaður sveinsprófsnefndar, var að vonum ánægður með daginn, fjölda nemenda og gæði prófanna. „Glæsileg sveinspróf sem þessi boða bjarta framtíð fyrir stéttina,“ var haft eftir honum við tilefnið.

Nemarnir sem þreyttu sveinspróf sín í dag eru:

  • Birgir Fannar Sigurðarson, Almar bakari
  • Darri Dór Orrason, Reynir bakari
  • Finnur Guðberg Ívarsson Prigge, Kökulist/Bláa lónið
  • Guðbjörg Ósk Andreasen Gunnarsdóttir, Brikk
  • Gunnar Jökull Hjaltason, Mosfellsbakarí
  • Hekla Guðrún Þrastardóttir, Hygge
  • Karen Guðmundsdóttir, Gulli Arnar
  • Lovísa Þórey Björgvinsdóttir, Bæjarbakarí
  • Matthildur Ósk Guðbjörnsdóttir, Gulli Arnar
  • Mikael Sævarsson, Kalla bakarí
  • Óli Steinn Steinþórsson, Gæðabakstur
  • Pálmi Hrafn Gunnarsson, IKEA
  • Sunneva Kristjánsdóttir, Sandholt

Landssamband bakarameistara óskar nýsveinum innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í komandi störfum.

Lesa nánar á mbl.is
← Allar fréttir