Ný stjórn Landssambands bakarameistara árið 2024

Fréttir

Ný stjórn Landssambands bakarameistara

Aðalfundur Landssambands bakarameistara (LABAK) var haldinn í Húsi atvinnulífsins fimmtudaginn 18. apríl.

Á fundinum var kosin ný stjórn félagsins. Sigurður Már Guðjónsson hjá Bernhöftsbakaríi var endurkjörinn formaður og með honum í stjórn eru Sigurbjörg Sigþórsdóttir hjá Bakarameistaranum og Sigurður Örn Þorleifsson hjá Bæjarbakaríi.

Sæti varamanna í stjórn skipa Ingibergur Sigurðsson hjá Sveinsbakaríi og Vilhjálmur Þorláksson hjá Gæðabakstri/Ömmubakstri.

Á aðalfundinum var farið yfir starf félagsins fyrir komandi starfsár og eru stór verkefni fram undan, meðal annars heimsmeistaramót ungra bakara sem LABAK mun standa fyrir í sumar að ósk alþjóðasamtaka bakara og kökugerðarmanna (UIBC).

Einnig sköpuðust líflegar umræður á fundinum um starfsskilyrði bakaraiðnaðar og framtíðarhorfur hins gamalgróna félags.

← Allar fréttir