LABAK veitti Árvakri hf. og Sjöfn Þórðardóttur viðurkenningu og þakklætisvott fyrir vandaða og góða umfjöllun í tengslum við Heimsmót ungra bakara UIBC sem haldið var hér á landi dagana 3.–5. júní 2024.
Umfjöllun Árvakurs hf., útgáfufélags Morgunblaðsins, og Sjafnar, umsjónarmanns Matarvefs mbl.is, vakti mikla athygli og var verðugt framlag til skráningar sögulegs viðburðar hér á landi.
Fyrir þessa góðu umfjöllun, sem er til þess fallin að efla hróður bakarastéttarinnar á Íslandi, vildi Landssamband bakarameistara þakka sérstaklega og veitti Sigurður Már Guðjónsson, formaður LABAK, Sjöfn og Árvakri hf. viðurkenningar í Hádegismóum fyrir hönd landssambandsins.





